Fotbolti.net
11.02.23 - 22:53
Ívan Guðjón Baldursson

Dæmdu mark af Brighton vegna mannlegra mistaka í VAR herberginu

Dæmdu mark af Brighton vegna mannlegra mistaka í VAR herberginu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brighton gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag þrátt fyrir gríðarlega mikla yfirburði.

Brighton tók forystuna í síðari hálfleik og tókst heimamönnum í London að jafna eftir slæm markmannsmistök Robert Sanchez.

Lokatölur urðu 1-1 en leikmenn, stjórnendur og stuðningsmenn Brighton fara svekktir heim vitandi að þeir hefðu átt að vinna leikinn með réttu.

Pervis Estupinan kom boltanum í netið í fyrri hálfleik þegar staðan var enn markalaus. Markið var upprunalega dæmt gilt en VAR herbergið skarst í leikinn og breytti dómnum yfir í rangstöðu.

John Brooks var í VAR herberginu og sá um að teikna rangstöðulínurnar en gerði mistök í marki Estupinan með því að teikna línuna frá röngum varnarmanni. 

Brooks teiknaði línuna frá James Tomkins, sem var þó ekki aftasti varnarmaðurinn. Marc Guehi var aftastur en Brooks tók ekki eftir því. Guehi hefði spilað Estupinan réttstæðan.

Þetta er ekki eina umdeilda atvikið úr leikjum dagsins því Mikel Arteta og stuðningsmenn Arsenal eru brjálaðir yfir jöfnunarmarki Brentford sem fékk að standa eftir nána athugun í VAR herberginu.

Fyrr í dag voru Chelsea menn æfir að fá ekki vítaspyrnu þegar Tomas Soucek skutlaði sér og varði boltann með hendi.

Gleði Estupinan var skammlíf.

Gleði Estupinan var skammlíf.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.