Fotbolti.net
11.02.24 - 22:37
Brynjar Ingi Erluson

Ítalía: Milan hafði betur gegn meisturunum

Theo Hernandez og Rafael Leao bjuggu til sigurmarkið

Theo Hernandez og Rafael Leao bjuggu til sigurmarkið

Canon

Mynd: EPA

Milan 1 - 0 Napoli
1-0 Theo Hernandez ('25 )
AC Milan rétt marði Napoli, 1-0, á San Síró leikvanginum í Mílanó í Seríu A í kvöld.

Meistararnir í Napoli voru líklegri aðilinn fyrstu mínúturnar en það var Milan sem gerði fyrsta og eina markið.

Rafael Leao fann Theo Hernandez, sem hljóp framhjá Mattia Gabbia áður en hann setti boltann framhjá Pierluigi Gollini í markinu.

Það kom aðeins meiri ferskleiki inn í lið Napoli í síðari hálfleik. Matteo Politano kom inn og náði að skapa hættu og þá átti Giovanni Simeone fínasta færi til að jafna.

Jöfnunarmarkið kom aldrei hjá Napoli og var það Milan sem hafði betur í baráttuleik. Milan er í 3. sæti með 52 stig en Napoli nú í 9. sæti með aðeins 35 stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.