Lið vikunnar í enska - Mane elskar Anfield

Markvörður - Rui Patricio (Wolves): Nálægt því að halda hreinu gegn Chelsea, aðeins snilli Hazard kom í veg fyrir það.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður - Bruno Manga (Cardiff): Frábær í mikilvægum sigri Cardiff gegn West Ham, 2-0.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður - Lewis Dunk (Brighton): Klettur í vörninni og átti stoðsendingu í sigri gegn Palace.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður - Sokratis Papastathopoulos (Arsenal) - Vörn Arsenal hefur fengið gagnrýni á þessu tímabili en vann vel sem heild gegn United.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður - Ainsley Maitland-Niles (Arsenal): Er að þróast og þroskast hægt og örugglega eins og hann sýndi með þroskaðri frammistöðu gegn United.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður - James Ward-Prowse (Southampton): Skoraði frábært aukaspyrnumark sem tryggði sigur gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður - Adam Lallana (Liverpool): Þessi meiðslahrjáði leikmaður var í byrjunarliðinu gegn Burnley og stóð sig fantavel.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður - Raheem Sterling (Man City): Skoraði þrennu í 3-1 sigri gegn Watford.

Mynd: Getty Images

Framherji - Ayoze Perez (Newcastle): Fór illa með Everton í 3-2 endurkomusigri Newcastle.

Mynd: Getty Images

Framherji - Jamie Vardy (Leicester): Skoraði sitt 100. mark fyrir félagið í sigri um helgina.

Mynd: Getty Images

Framherji - Sadio Mane (Liverpool): Skoraði í sjötta heimaleiknum í deildinni í röð þegar hann gerði tvö gegn Burnley. Elskar Anfield.

Mynd: Getty Images





