Ari Freyr Skúlason er í byrjunarliði Norrköping í fyrstu umferð nýs tímabils í Svíþjóð. Hann gekk í raðir liðsins fyrir tímabilið.
Norrköping er 1-0 yfir í hálfleik gegn Sirius og skoraði Ari Freyr eina mark leiksins með þrumufleyg utan af velli.
Markið er glæsilegt enda Ari með baneitraðan vinstri fót. Myndband má sjá hér fyrir neðan.
Finnur Tómas Pálmason er á bekknum hjá Norrköping.
Skulason! Vilken kanon från islänningen! 1-0 IFK Norrköing pic.twitter.com/icjkZCt7UL
— discovery+ sport 🇸🇪 (@dplus_sportSE) April 11, 2021
Athugasemdir