Fotbolti.net
11.06.20 - 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ný herferð fyrir Pepsi Max-kvenna: Mjög jákvætt

Valur er ríkjandi Íslandsmeistari í Pepsi Max-deild kvenna.

Valur er ríkjandi Íslandsmeistari í Pepsi Max-deild kvenna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ölgerðin ætlar í sumar að fara í átök til að efla áhugann á öllu sem kemur að Pepsi Max-deild kvenna. Frá þessu var sagt á kynningarfundi Pepsi Max-deildana í höfuðstöðvum KSÍ í dag.
Herferðin ber heitið „Tökum pláss" sem vísar í það að Pepsi Max-deild kvenna þurfi að taka pláss í umræðunni, og að áhorfendur þurfi að taka pláss á leikjum deildarinnar.

Sigríður Rakel Ólafsdóttir, vörumerkjastjóri Pepsi á Ísland, kynnti herferðina og talaði hún um Spán sem fyrirmynd en þar hefur áhuginn á kvennafótbolta aukist mjög að undanförnu.

Einnig sagði hún frá því að Ölgerðin og Pepsi Max-deild kvenna ætli að koma saman og byggja stærsta fótboltavöll í heimi í Viðey, það verði heimsmet sett til að vekja áhuga á deildinni.

„Mér líst mjög vel á þetta. Ég skal samþykkja allar herferðir sem snúa að því að gera kvennaboltann sýnilegri og leikmenn í Pepsi Max-deild kvenna. Það er mjög jákvætt og ég hlakka til að sjá hvernig þetta verður," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona og fyrirliði Íslandsmeistara Vals, í samtali við Fótbolta.net um átakið.

Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, tekur undir orð Hallberu. „Mér finnst þetta bara frábært. Þau sem fengu þessa hugmynd og þau sem eru að fylgja þessu eftir, þetta er meiriháttar hjá þeim."

Pepsi Max-deild kvenna hefst annað kvöld með leik Íslandsmeistara Vals gegn KR. Leikurinn hefst 19:15 og verður á Origo-vellinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.