Fotbolti.net
11.06.21 - 05:55
Victor Pálsson

Vináttulandsleikur í dag: Ísland mætir Írlandi

Vináttulandsleikur í dag: Ísland mætir Írlandi
Canon

Mynd: Getty Images

IcelandairKvennaboltinn
Íslenska kvennalandsliðið mun spila við Írland í kvöld en um er að ræða vináttulandsleik á milli þessara þjóða.
Leikið er tvo leiki við Írland en seinni leikurinn fer svo fram á næstkomandi þriðjudag.

„Ég vonast til að vera með boltann, við viljum halda boltanum vel en vera líka beinskeyttar. Það verða augnablik þar sem við þurfum að verjast líka," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, á blaðamannafundi í gær.

Ísland mun nota þessa landsleiki til að skoða leikmenn og gæti það haft áhrif á liðsvalið á næstu mánuðum.

Allir leikmennirnir eru heilir fyrir þetta verkefni en leikurinn hefst klukkan 17:00 á Laugardalsvelli.

Vináttulandsleikur kvenna:
17:00 Ísland - Írland
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.