Fotbolti.net
11.06.23 - 13:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aouar mættur til Roma (Staðfest)

Aouar mættur til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Roma hefur tilkynnt komu Houssem Aouar til félagsins en hann kemur til ítalska liðsins frá Lyon í Frakklandi.

Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið en hann kom á frjálsri sölu.

„Ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir hjá Roma því það er frábært félag með magnaða sögu. Þetta er rétt verkefni fyrir mig, stórt lið með gæða leikmenn og einstaka stuðningsmenn," sagði Aouar.

Þessi 24 ára gamli franski miðjumaður er uppalinn hjá Lyon en hann lék 233 leiki fyrir liðið og skoraði 41 mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.