Opnunarleikur HM fer fram klukkan 19:00 í kvöld, en það eru gestgjafarnir í Mexíkó sem taka á móti Suður-Afríku. Leikurinn er spilaður á Mexico City-leikvanginum í Mexíkó og er í beinni útsendingu á RÚV2.
Þetta er í annað sinn sem þjóðirnar mætast í opnunarleik mótsins, en þessar þjóðir mættust líka á HM 2010.
Þá lauk leiknum með 1-1 jafntefli þar sem Siphiwe Tshabalala skoraði opnunarmarkið og fagnaði því með eftirminnilegu fagni.
Byrjunarliðin fyrir leik kvöldsins eru klár. Raul Jimenez er í fremstu víglínu hjá Mexíkó og Lyle Foster, leikmaður Burnley, er fremstur hjá Suður-Afríku. Cesar Montes er fyrirliði Mexíkó en markvörðurinn Ronwen Williams er með bandið hjá Suður-Afríku
Mexíkó: Rangel; Reyes, Montes, Vásquez, Gallardo; Lira, Fidalgo, Gutiérrez; Alvarado, Jiménez, Quiñones.
Suður-Afríka: Williams; Mudau, Sibisi, Okon, Mbokazi, Modiba; Mokoena, Shitole, Adams; Rayners, Foster.
The official lineup! ????
— Mexican National Team (@miseleccionmxEN) June 11, 2026
This is our first #StartingXI of the World Cup.
Ready to give it our all. LET'S GOOOOOO! ????#SomosMéxico ???????? pic.twitter.com/YKVToWMAYe
???????????? THE ARRIVAL OF SOUTH AFRICA’S NATIONAL TEAM AT THE ESTADIO AZTECA! ????? pic.twitter.com/6kjwspc4yY
— All Fútbol MX ???????? (@AllFutbolMX) June 11, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


