Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 16:40
Elvar Geir Magnússon
Samantekt
Enginn augljós kostur ef Stjarnan lætur Jökul fara
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull og Halldór saman á vellinum.
Jökull og Halldór saman á vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar er orðinn þaulæfður í að svara spurningum fréttamanna um sína stöðu. Miklar væntingar voru gerðar í Garðabænum fyrir tímabilið en frammistaðan og úrslitin verið mikil vonbrigði.

Fyrir tímabilið var Birnir Snær Ingason sóttur og það var klárlega ákveðin yfirlýsing. En staðreyndin er sú að Stjarnan situr í níunda sæti Bestu deildarinnar. Fjölmiðlar hafa sett upp hvern úrslitaleikinn fyrir Jökul á fætur öðrum í umræðu sína og einn slíkur var í gær þegar Stjarnan tapaði 3-1 fyrir Lengjudeildarliði Aftureldingar og missti af undanúrslitasæti í bikarnum.

Margir stuðningsmenn fara ekki leynt með áhyggjur af stöðu mála en í stjórnarherberginu halda menn spilunum þétt að sér. Leikmenn segjast standa við bakið á Jökli en inni á vellinum eru þeir ekki að sýna að svo sé.

Við höfum verið að hlera mann og annan og meðal annars heyrt að það yrði mjög kostnaðarsamt að ráðast í þjálfarabreytingar og það sé eitthvað sem félagið sé með bak við eyrað.

Þá er stór þáttur að enginn augljós kostur er til að taka við af Jökli. Það væri Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, en eins og hefur verið talað um er hann náinn vinur Jökuls sem gæti flækt málin og þá segja einhverjar sögur að hann yrði umdeild ráðning í Garðabænum eftir að hafa starfað við yngri flokka félagsins. Ekki veit ég hvort eitthvað sé til í því.

Ef Halldór er ekki í myndinni gæti Jón Þór Hauksson, fyrrum þjálfari ÍA og fyrrum aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, talist líklegur til að vera efstur á blaði. Það fer gott orð af honum í Garðabænum.

Hópur stuðningsmanna Stjörnunnar vill fá Rúnar Pál Sigmundsson heim til að stýra skútunni aftur en hann hefur verið að gera frábæra hluti með Gróttu. Rúnar er goðsögn innan Stjörnunnar eftir fyrri afrek með liðið.

Heimir Guðjónsson er nafn sem hefur verið nefnt að Stjarnan gæti horft til en mjög ólíklegt er að hann yfirgefi verkefnið hjá Fylki á þessum tímapunkti. Þá eru Þorlákur Árnason, Ejub Purisevic og Baldur Sigurðsson önnur nöfn sem kastað hefur verið fram.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Breiðabliki í Garðabænum á þriðjudaginn. Ekkert hefur heyrst frá Garðabænum í dag og líklegt að ekki verði gerðar neinar breytingar áður en kemur að þeim leik.
Slapp
banner
banner