Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 09:59
Kári Snorrason
Saumað að Infantino á blaðamannafundi - „Slakiði á“
Gianni Infantino.
Gianni Infantino.
Mynd: EPA
Hrósaði Trump.
Hrósaði Trump.
Mynd: EPA
„Slakið bara á,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, þegar þjarmað var að honum á blaðamannafundi á Azteca vellinum í Mexíkó í gærkvöld.

HM hefst í kvöld en það má með sanni segja að alþjóðapólitíkin og ástandið í heiminum hafi þegar sett svip sinn á mótið.

Nokkur mál utan vallar hafa vakið athygli, þar á meðal mál sómalska dómarans Omar Artan, sem var meinað að koma inn í Bandaríkin þrátt fyrir að eiga að dæma á mótinu.

Þá dvelur Íran í Mexíkó þó svo að liðið keppi í Bandaríkjunum. Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir Bandaríkin ekki hafa viljað hýsa íranska hópinn.

Infantino sagði að það hefði verið óheppilegt að fremsti dómari Afríku hafi verið stöðvaður við landamærin og meinað inngöngu inn í landið en FIFA hefur ekki stjórn á öllu.

Hann kom jafnframt Donald Trump Bandaríkjaforseta til varnar og sagði að heimsmeistaramótið hefði verið ómögulegt án Trump.


Slapp
banner
banner