Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 12:44
Elvar Geir Magnússon
Spáir Frökkum titlinum ef þeir fara ekki í fýlu
Didier Deschamps og Kylian Mbappe fara yfir málin.
Didier Deschamps og Kylian Mbappe fara yfir málin.
Mynd: EPA
Alan Shearer.
Alan Shearer.
Mynd: EPA
Sparkspekingurinn og fyrrum markahrókurinn Alan Shearer spáir því að Frakkland muni standa uppi sem sigurvegari á HM en mótið fer af stað í kvöld.

„Ég held að Frakkland vinni en það fylgir því sá fyrirvari að það verði engar deilur innbyrðis í hópnum. Miðað við þá getu sem þeir hafa sóknarlega, þá verða tveir eða þrír stórir leikmenn á bekknum í hverjum leik. Möguleikar þeirra fara eftir því hvort þeir takast á við það á réttan hátt," segir Shearer.

Það hefur oft verið dramatík bak við tjöldin í franska landsliðshópnum á stórmótum, í hópnum eru menn með stór egó en Didier Deschamps, þjálfari liðsins, hefur svo sannarlega reynsluna til að takast á við það.

Rosaleg gæði sóknarlega
„Frakkland getur klárlega unnið þetta mót, hópurinn þeirra er fullur af gæðum," segir Phil McNulty, íþróttafréttamaður BBC.

„Sjáið bara gæðin þeirra sóknarlega. Þeir eru auðvitað með Kylian Mbappe og Ballon d’Or gullboltahafann Ousmane Dembele hjá PSG. Þess utan eru liðsfélagar hans Desire Doue og Bradley Barcola; Michael Olise frá Bayern München og töframaður Manchester City Rayan Cherki."

„Hugo Lloris er ekki í markinu lengur en þeir eru samt með framúrskarandi markvörð í Mike Maignan hjá AC Milan. Deschamps gæti látið af störfum með annan heimsmeistaratitil undir beltinu."

Frakkland er með Noregi, Senegal og Írak í riðli.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner