Nathaniel Brown er nálægt því að ganga til liðs við Bayern. Bild greinir frá þessu.
Brown er 22 ára gamall vinstri bakvörður en hann er á mála hjá Frankfurt.
Bild segir frá því að hann hafi þegar rætt við Vincent Kompany og hafi samþykkt að ganga til liðs við félagið.
Félögin eru í viðræðum sem eru komnar vel á veg. Brown er í HM hópi Þýskalands. Hann hefur spilað fimm landsleiki.



