Fotbolti.net
11.07.16 - 21:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Halldór Orri: Skora ekki oft með skalla

Auglýsing
Halldór Orri: Skora ekki oft með skalla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

„Við þurftum virkilega að hafa fyrir þessum sigri og maður er alveg búinn á því,\" sagði Halldór Orri Björnsson eftir 2-1 sigur Stjörnunnar á Fjölni í kvöld.

Halldór Orri skoraði bæði mörk sinna mann í kvöld og var að vonum sáttur í leikslok.
„Þetta var örugglega skemmtilegur leikur á að horfa, það var mikið af færum og bæði lið gáfu færi á sér, fóru hátt upp og þá skapast pláss fyrir hitt liðið til þess að beita skyndisóknum. Þetta var mikið af hlaupum og bara hörkuleikur.\"

Halldór var síðan spurður út í mörkin sem voru gríðarlega fagmannlega unnin ef svo má að orði komast.

„Fyrra markið var einfaldara fannst mér og í seinna markinu náði ég að tímasetja hlaupið mjög vel og náði að hanga einhvern veginn. Það er ekki oft sem ég skora með skalla þannig að það var virkilega ánægjulegt að sjá hann inni.\"

Nú er bara litið upp á við að sögn Halldórs.

„Við gáfum það út fyrir mót að við ætluðum að vera að berjast um þennan titil þannig að við erum ekki búnir að vera sáttir með okkur. Við horfum bara upp á við núna og það er virkilega erfiður leikur á móti (Víkingi) Ólafsvík í næstu umferð.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.