Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 11. júlí 2021 22:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bonucci stríðir Englendingum: Hann er að koma til Róm!
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Leandro Bonucci átti stórkostlegan leik í hjarta varnarinnar hjá Ítalíu gegn Englandi.

Hann og félagi hans, Giorgio Chiellini, eru frábærir saman.

Ítalía hafði betur gegn Englandi í úrslitaleiknum sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni. Bonucci skoraði mark Ítalíu í leiknum og skoraði svo í vítakeppninni líka.

Eftir leik fór Bonucci upp að myndavél á vellinum og sagði af innlifun: „Hann er að koma til Róm!"

Það hefur ítrekað verið talað um að fótboltinn sé að komaa heim í tengslum við það að England myndi vinna mótið. Fótboltinn er ekki að koma heim, hann er á leið til Róm eins og Bonucci segir.


Athugasemdir
banner
banner