Fotbolti.net
15.09.26 - 16:11
Kári Snorrason

Meitlað í stein að Campbell velji Bandaríkin fram yfir Ísland - Bíður eftir kallinu frá Pochettino

Skoraði gegn Bayer Leverkusen í síðasta mánuði.

Skoraði gegn Bayer Leverkusen í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: EPA

William Cole Campbell segir meitlað í stein að hann ætli að spila fyrir bandaríska landsliðið fremur en það íslenska.

Campbell á að baki sjö yngri landsleiki fyrir U18 ára lið Íslands en fyrir tveimur árum tók hann ákvörðun um að leika fyrir bandaríska landsliðið.
Cole Campbell velur Bandaríkin fram yfir Ísland (Staðfest)
TENGT EFNI

Cole Campbell velur Bandaríkin fram yfir Ísland (Staðfest)

Hann hefur spilað átta leiki fyrir yngri landslið Bandaríkjanna og skorað sex mörk. Campbell er alinn upp í Bandaríkjunum en er með íslenskan ríkisborgararétt.

Hann flutti til Íslands árið 2020 og spilaði með FH og Breiðabliki áður en hann gekk í raðir þýska stórliðsins Borussia Dortmund.

Hann yfirgaf Dortmund og var keyptur til Elversberg fyrir metfé í sumar, kaupverðið um sex milljónir evra. Hann hefur byrjað þrjá leiki Elversberg í Bundesliga á tímabilinu og skorað eitt mark.

„Ég er þegar búinn að taka ákvörðun um að skipta yfir í Bandaríkin. Það var af mörgum mismunandi ástæðum, en framtíð mín er hjá Bandaríkjunum. Ég sé ekki eftir neinu eða neitt slíkt. Þetta er eitthvað sem er meitlað í stein fyrir mér,“ sagði Campbell í samtali við þýska miðilinn Bulinews.

Hann vonast til að vera í næsta landsliðshóp Bandaríkjanna sem verður tilkynntur á næstu dögum. „Ég einbeiti mér bara að því að standa mig eins vel og ég get og ég bið þess að verða valinn í fyrsta sinn fljótlega. Það yrði draumur að rætast að spila fyrir Bandaríkin. Vonandi fæ ég kallið,“ sagði Campbell jafnframt.
Á að baki 7 yngri landsleiki fyrir Ísland.

Á að baki 7 yngri landsleiki fyrir Ísland.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bíður eftir kallinu frá Pochettino.

Bíður eftir kallinu frá Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.