Fotbolti.net
11.07.21 - 16:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ian Jeffs: Erfitt að spila góðan fótbolta á þessum velli

Auglýsing
Ian Jeffs: Erfitt að spila góðan fótbolta á þessum velli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Alltaf erfitt að spila á móti Þór/KA og ég vissi alveg að þetta yrði mikil barátta. Völlurinn var ekki að bjóða uppá 'fancy football' en þetta var baráttuleikur og sanngjörn úrslit." sagði Ian Jeffs eftir leik ÍBV gegn Þór/KA í dag.
Jeffs var ánægður með varnarleik liðsins í heild.

„Við erum búin að vera vinna í okkar varnarleik, hvernig við erum að verjast sem lið. Ég var ánægður með þróunina úr síðasta leik á móti Fylki og í dag, mér fannst við vera betri varnarlega en gegn Fylki."

„Planið var að spila ekki of mikið á miðsvæðinu og fyrir framan okkar vítateig, það er bara erfitt að spila góðan fótbolta á þessum velli. Við vorum búin að hugsa nokkrar leiðir til að leysa hápressuna þeirra og ég vissi að við myndum fá tækifæri í leiknum."

Mark Þór/KA var ansi klaufalegt en Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving markvörður ÍBV misreiknaði boltann og missti hann í netið.

„Já, þetta var ekki skot, þetta var meira fyrirgjöf. Hún misreiknar skoppið á boltanum og fór í gegnum klofið. Þetta var skrítið mark, þetta kemur stundum fyrir og svona er þetta, ég er ánægður með það hvernig stelpurnar svöruðu fyrir þetta, sýndu karakter að koma til baka og jafna leikinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.