Karólína Lea: Engar áhyggjur, ég er ekki að fara að falla á þessu
Auglýsing

Karólína Lea í leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karólína Lea í leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður er vanur þessum lyfjaprófum eftir leiki í Meistaradeildinni, en það er aldrei gott að keppa í 28 gráðum, svitna öllu út og þurfa að pissa undir pressu. En engar áhyggjur, ég er ekki að fara að falla á þessu," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins, fyrir æfingu í dag.
Karólína var send beint í lyfjapróf eftir fyrsta leik á EM í gær, gegn Belgíu. Hún fór ekki með með liðinu og var hún komin seint heim út af öllu þessu stússi.
Karólína var frábær í leiknum og var hún með betri leikmönnum íslenska liðsins. Aðstæður voru erfiðar og var mikill hiti.
„Ég vil frekar hafa frost heldur en svona mikinn hita. Þetta vandist með leiknum. Ég vona að það verði aðeins kaldara á móti Ítalíu."
„Mér fannst við geta nýtt sóknirnar betur. Við vorum að komast í góðar stöður. Þetta var fínn leikur og margt jákvætt sem er hægt að taka úr þessu. Við hefðum átt að nýta færin betur og við gerum kröfu á okkur að gera betur."
Karólína, sem er tvítug, var að leika sinn fyrsta leik á stórmóti. Var hún sátt með sína frammistöðu?
„Já og nei. Ég var sátt með að finna mig betur á kantinum en í síðasta leik. Ég hefði samt mátt gera stundum betur í stöðunum sem ég var að koma mér í."
Allt viðtalið er hér að ofan en þar talar Karólína meira um sína frumraun á stórmóti með Íslandi.