Fotbolti.net
11.07.22 - 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Vidal riftir við Inter (Staðfest) - Gengur í raðir Flamengo

Arturo Vidal er á leið til Brasilíu

Arturo Vidal er á leið til Brasilíu

Canon

Mynd: Getty Images

Sílemaðurinn Arturo Vidal hefur rift samningi sínum við ítalska félagið Inter en félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni í dag.
Þessi 35 ára orkumikli miðjumaður kom til Inter frá Barcelona fyrir tveimur árum og vann ítölsku deildina á fyrsta tímabili sínu með ítalska liðinu.

Á síðasta tímabili var hann í algeru aukahlutverki og spilaði aðeins 700 mínútur í 27 leikjum í Seríu A.

Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Inter en hefur fengið þeim samningi rift.

Vidal er lentur í Rio de Janeiro í Brasilíu þar sem hann mun ganga í raðir Flamengo.

Sílemaðurinn hefur áður spilað fyrir félög á borð við Bayern München, Juventus og Bayer Leverkusen og á þá 133 leiki að baki fyrir landslið Síle.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.