Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 11. júlí 2024 14:24
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Fram 
Halldór B. Jónsson er látinn
Halldór að afhenda bikar árið 2006.
Halldór að afhenda bikar árið 2006.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hall­dór B. Jóns­son, fyrrum varaformaður KSÍ og fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Fram, lést síðasta þriðjudag eftir erfið veikindi. Hann var 75 ára gamall.

Fram­ar­ar munu minn­ast Hall­dórs fyr­ir viður­eign Fram og KR í Bestu deildinni en liðin mæt­ast á heima­velli Fram í Úlfarsár­dal klukk­an 19.15 í kvöld.

Af heimasíðu Fram:
Hall­dór B. Jóns­son, fyrr­ver­andi formaður knatt­spyrnu­deild­ar Fram og fyrr­um vara­formaður KSÍ, lést þriðju­dag­inn 9. júlí eft­ir erfið veik­indi. Hann var 75 ára gam­all.

Hall­dór vann frá­bært starf fyr­ir Fram og ís­lenska knatt­spyrnu þegar hann hafði heilsu til.
Halldór B. Jónsson var gerður að heiðursfélaga Fram á 100 ára afmæli félagsins árið 2008.

Hall­dór tók við for­mennsku í knatt­spyrnu­deild Fram árið 1981. Síðar varð hann öfl­ug­ur vara­formaður KSÍ og sá mikið um innra starf inn­an Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands. Hann var til mynda formaður móta­nefnd­ar og formaður dóm­ara­nefnd­ar til margra ára. Hall­dór var sæmd­ur heiður­skrossi KSÍ, sem er æðsta heiðurs­merki sam­bands­ins.

Hall­dór og stjórn­ar­menn hans í Fram lögðu mikla áhersla að styrkja meist­ara­flokk Fram, sem varð mjög sig­ur­sæll und­ir stjórn Ásgeirs Elías­son­ar þjálf­ara en liðið vann 15 bik­ara á 7 árum. Meðal ann­ars varð fé­lagið Íslands­meist­ari þris­var sinn­um og bikar­meist­ari jafnoft.

Fram­ar­ar munu minn­ast Hall­dórs B. Jóns­son­ar fyr­ir viður­eign Fram og KR í Bestu deild karla en liðin mæt­ast á heima­velli Fram í Úlfarsár­dal klukk­an 19.15 í kvöld.

Athugasemdir
banner
banner
banner