Fotbolti.net
11.08.23 - 23:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Láki: Þetta er fegurðin við að taka ekki inn leikmenn

Auglýsing
Langþráður sigur, og útisigur.

Langþráður sigur, og útisigur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Þetta er gríðarlega ljúft, sérstaklega út frá því að við vorum með unninn leik og að sigla þessu heim þegar þeir minnka muninn í 2-1 með þessu fræga þriðja marki. Þetta varð leikur og undir lokin var þetta eins og borðtennis, bæði lið að reyna sækja sigurmarkið og það datt okkar megin," sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, eftir sigur á Ægi í Lengjudeildinni í kvöld.

Sigurinn var fyrsti útisigur Þórs í deildinni í sumar.
„Við skoruðum helvíti góð mörk, en svo bara slökkvum við á okkur. Það er kannski einkenni þess að við erum með mikið af ungum leikmönnum sem eru ekki með mikla reynslu. En, við erum líka með leikmann sem er ekki með mikla reynslu sem kom inn og skoraði. Það var rosa sætt að sjá að það var Nökkvi sem kláraði þetta," sagði Láki.

Síðasta hálmstrá Ægis?
„Án þess að ég ætla vera klára Ægismenn þá held ég að þetta hafi verið síðasta hálmstráið hjá þeim. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þeir voru alltaf að fara gefa allt í þennan leik og eru með gríðarlega sterka erlenda leikmenn, hörkuleikmenn og alltof fá stig miðað við mannskap og spilamennsku. Við vissum að það kæmi áhlaup, en við hefðum átt að gera betur."

Troðið í andlit
„Gríðarlega sáttur með sigurinn... erum búnir að tapa þremur af síðustu fjórum leikjum 1-0 með mörkum á síðustu mínútunum. Náðum að troða upp í andltiið á einhverjum sem segja að við séum ekki í neinu standi."

Láki talaði um að völlurinn væri rosalega þungur, væri góður en svo rosalega mjúkur. „Það tekur toll af leikmönnum, maður sá það alveg."

„Mér finnst allt í lagi að þessir hlutir (mörk í lok leikja) falli með okkur líka. Við tökum því."


Mjög smáborgaralegt
Láki var spurður út í vítaspyrnuna sem Ægir fékk í leiknum. „Það var gjöf, en ég nenni ekki að tala um það. Þeir gátu gert tilkall til vítis í fyrri hálfleik. En þetta var mjög smáborgaralegt, öskrað á víti eftir að leikmaðurinn er búinn að sparka á markið og lendir á varnarmanni. Mér fannst það bara kjánalegt, því miður, en sem betur fer kostaði það okkur ekki stig í dag."

Tvíeggja sverð
Þjálfarinn var hreinskilinn þegar hann var spurður út í innkomu hetjunnar Nökkva Hjörvarssonar. Nökkvi kom inn á í lok leiks og sá Láki ekki fyrir sér að Nökkvi yrði hetjan.

„Nei. Bjarni Guðjón var búinn að vera pínu veikur, var slappur í dag og var orðinn mjög þreyttur. Hann var hættur að sinna varnarvinnunni og við vorum að fá þá á okkur út af því. Þetta er alltaf svona tvíeggja sverð; Bjarni er alltaf líklegur til að skora eða leggja upp, á maður að halda honum inn á?"

„Ég átti ekki von á því að Nökkvi væri að fara klára þetta á síðustu mínútunni, en hann er með rosalega góðan fót svo það kom mér ekkert rosalega á óvart. Ekki spurning, við erum með rosalega mikið af góðum strákum frá 2008-2002, ungir leikmenn sem við erum búnir að vera keyra á. Það er mikið búið að hamast í manni að hafa ekki tekið leikmenn í glugganum, en þetta er fegurðin við að taka ekki inn leikmenn,"
sagði Láki.

Hann talar um að Þór sé eftir leikinn ennþá í fallbaráttu. „Við ákváðum að hvíla þetta 5. sætis markmið, því við höfum bara verið að tapa leikjum sem við höfum verið mjög góðir í."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Það var rosa sætt að sjá að það var Nökkvi sem kláraði þetta

Það var rosa sætt að sjá að það var Nökkvi sem kláraði þetta

Canon

Mynd: Skjáskot

Láki kom inn á Kristófer Kristjánsson sem bjó til fyrsta mark Þórs.

Láki kom inn á Kristófer Kristjánsson sem bjó til fyrsta mark Þórs.

Canon

Mynd: Páll Jóhannesson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.