11.08.26 - 21:38
Brynjar Ingi Erluson
Man City í sambandi við umboðsmann Enzo

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City er í reglulegu sambandi við umboðsmann Enzo Fernandez, miðjumanns Chelsea og argentínska landsliðsins. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Enzo Maresca vill ólmur endurnýja kynnin við Enzo Fernandez sem hann stýrði í tæpt eitt og hálft ár hjá Chelsea.
Argentínumaðurinn er sagður opinn fyrir því að yfirgefa Chelsea. Lundúnafélagið er tilbúið að selja en mun ekki hlusta á tilboð undir 120 milljónum punda.
Chelsea væri þó ekki ósátt við að halda Fernandez og er því ekki undir neinni pressu að selja hann.
Romano segir Man City ætla að ræða við Chelsea og freista þess að ná verðmiðanum niður.
City hefur þegar keypt Elliot Anderson frá Nottingham Forest fyrir 117 milljónir punda í sumar. Það á því eftir að koma í ljós hvort félagið sé tilbúið að slá eigið kaupmet í annað sinn á nokkrum vikum.