Fotbolti.net
11.08.26 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson

Willum í umspil Meistaradeildarinnar

Willum er kominn í umspil Meistaradeildarinnar

Willum er kominn í umspil Meistaradeildarinnar

Canon

Mynd: NEC Nijmegen

Willum Þór Willumsson og hans menn í NEC Nijmegen eru komnir áfram í umspil Meistaradeildarinnar eftir frækinn 2-1 sigur á Olympiakos í kvöld.
Blikinn sat allan tímann á varamannabekknum. Olympiakos er eitt stærsta félag Grikklands og vann Sambandsdeildina fyrir aðeins tveimur árum.

Emre Mor, fyrrum leikmaður Borussia Dortmund, skoraði sigurmarkið í framlengingu. Olympiakos mætir Bodo/Glimt í umspilinu.

Það er einnig komið í ljós hverjir mæta Amin Cosic og félögum hans í Viking. Norska liðið fær króatíska stórveldið Dinamo Zagreb í umspilinu.

Panathinaikos, lið Sverris Inga Ingasonar, tryggði sér einnig sæti í umspili Sambandsdeildarinnar með 2-1 sigri á búlgarska liðinu CSKA Sofia 1948.

Þar mætir liðið annað hvort Hradec Kralove frá Tékklandi eða Besiktas frá Tyrklandi.

Sverrir var ekki með Panathinaikos en hann er að jafna sig eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné.

Kairat 0 - 1 Levski (Samanlagt, 0-2)
0-1 Reinaldo ('13 )

Bodo-Glimt 3 - 2 St. Gilloise (Samanlagt 6-5)
1-0 Ole Blomberg ('51 )
1-1 Guilherme Smith ('61 )
2-1 Jens Hauge ('76 )
2-2 Mohammed Fuseini ('88 )
3-2 Andreas Helmersen ('117 )
Rautt spjald: Kamiel Van De Perre, St. Gilloise ('90)

Kauno Zalgiris 1 - 2 Dinamo Zagreb (Samanlagt, 1-7)
0-1 Lukas Kacavenda ('19 )
0-2 Josip Misic ('30 )
1-2 Gabriel Debeljuh ('56 )
Rautt spjald: Ivan Filipovic, Dinamo Zagreb ('32)

NEC 2 - 1 Olympiakos (NEC áfram, samanlagt 2-1)
0-1 Ayoub El Kaabi ('46 )
1-1 Brian Linssen ('70 )
2-1 Emre Mor ('95 )
Rautt spjald: Konstantinos Fortounis, Olympiakos ('80)

Rauða Stjarnan 0 - 2 Hapoel Beer Sheva (Samanlagt, 0-3)
0-1 Igor Zlatanovic ('61 )
0-2 Javon East ('79 )
Rautt spjald: Mohammed Abu Fani, Rauða Stjarnan ('90)

Celje 2 - 0 Ararat-Armenia (Samanlagt, 3-2)
1-0 Yaya Dukuly ('83 )
2-0 Benjamin Verbic ('85 )

Slovan 2 - 0 Mjallby (Samanlagt, 4-1)
1-0 Suleiman Camara ('47 )
2-0 Alasana Yirajang ('78 )

Sturm 0 - 1 Fenerbahce (Samanlagt, 0-2)
0-1 Anderson Talisca ('66 , víti)
Amin Cosic og félagar í Viking mæta Dinamo Zagreb í umspilinu

Amin Cosic og félagar í Viking mæta Dinamo Zagreb í umspilinu

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.