Fotbolti.net
11.08.26 - 21:55
Brynjar Ingi Erluson

Aston Villa og Atlético ná saman um kaupverð

Aston Villa og Atlético ná saman um kaupverð
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur náð samkomulagi við Atlético Madríd um kaup á ítalska vinstri bakverðinum Matteo Ruggeri.
Fabrizio Romano greinir frá því að Aston Villa og Atletico Madríd hafi náð munnlegu samkomulagi um félagaskiptin.

Villa greiðir um 23 milljónir punda fyrir hinn 24 ára gamla Ruggeri.

Ítalinn hefur þegar samið við enska félagið um kaup og kjör. Ef allt gengur eftir mun hann gangast undir læknisskoðun síðar í vikunni.

Ruggeri lék með Atalanta frá 2020 til 2025 og varð meðal annars Evrópudeildarmeistari með félaginu.

Hann gekk til liðs við Atletico Madríd fyrir 17 milljónir evra á síðasta ári og lék 47 leiki í öllum keppnum á sínu eina tímabili hjá félaginu.

Bakvörðurinn mun koma inn í hópinn í stað Lucas Digne sem var seldur til Paris Saint-Germain á dögunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.