Fotbolti.net
11.08.26 - 23:34
Brynjar Ingi Erluson

Tekur Martínez við hollenska landsliðinu?

Tekur Martínez við hollenska landsliðinu?
Canon

Mynd: EPA

Spænski þjálfarinn Roberto Martínez er í viðræðum við hollenska fótboltasambandið um landsliðsþjálfarastarfið.
Martínez lét af störfum hjá portúgalska landsliðinu eftir heimsmeistaramótið og leitar nú að nýju starfi.

Hann stýrði áður belgíska landsliðinu og hefur einnig þjálfað Everton, Wigan og Swansea.

De Telegraaf segir nokkra þjálfara hafa komið til greina sem arftaka Ronald Koeman sem hætti með hollenska landsliðið eftir HM.

Martínez er á meðal þeirra en Peter Bosz, Arne Slot og Erik ten Hag hafa allir dregið sig úr baráttunni af mismunandi ástæðum.

Nigel de Jong, fyrrum landsliðsmaður Hollands, ræddi við Martínez fyrir hönd hollenska sambandsins í Malaga en fundurinn gekk vel að sögn hollenskra miðla.

Louis van Gaal hefur einnig verið orðaður við endurkomu og segist tilbúinn að taka við landsliðinu í fjórða sinn. Sambandið hefur þó ekki sett sig í samband við hann.

Michael Reiziger, þjálfari U21 árs landsliðsins, hefur einnig rætt við stjórnarmenn sambandsins en þeim hefur ekki miðað áfram.

Verði Martínez ráðinn verður hann fyrsti erlendi þjálfarinn til að stýra Hollandi síðan Ernst Happel stýrði liðinu frá 1977 til 1978, þar sem hann kom liðinu í úrslitaleik HM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.