Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. september 2020 22:00
Aksentije Milisic
PSG sagt hafa áhuga á Skriniar
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain er sagt vera tilbúið til þess að tvöfalda laun Milan Skriniar, leikmanns Inter, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.

Þessi 25 ára gamli miðvörður er með samning við Inter til ársins 2023 en hann hefur reglulega verið orðaður burt frá félaginu. Sagt er að hann sjálfur vilji vera áfram.

Hann hefur hins vegar fallið niður goggunarröðina hjá Antonio Conte og gæti verið á förum ef félagið fær tilboð sem hljómar upp á 50 milljónir evra.

PSG sér Skriniar sem arftaka Thiago Silva en hann gekk til liðs við Chelsea á dögunum eins og flestir vita.

Inter endaði í 2. sæti ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og þá tapaði liðið fyrir Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner