Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. september 2022 11:15
Brynjar Ingi Erluson
Fulham lánar Knockaert til Grikklands (Staðfest)
Anthony Knockaert
Anthony Knockaert
Mynd: Getty Images
Anthony Knockaert, leikmaður Fulham á Englandi, mun spila með gríska úrvalsdeildarfélaginu Volos á láni út þessa leiktíð, en þetta var staðfest í dag.

Knockaert, sem er 30 ára gamall, hefur verið samningsbundinn Fulham síðustu tvö ár.

Hann spilaði lítið með liðinu á síðustu leiktíð er liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni en hann missti af 43 leikjum vegna meiðsla.

Frakkinn fær nú tækifæri til að koma sér aftur á skrið. Hann mun spila fyrir gríska úrvalsdeildarfélagið Volos á láni frá Fulham út þessa leiktíð.

Knockaert hefur áður spilað fyrir Nottingham Forest, Brighton, Leicester, Standard Liege og Guingamp.
Athugasemdir
banner
banner