Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. september 2022 16:52
Brynjar Ingi Erluson
Noregur: Ellefta mark Jónatans - Svava Rós lagði upp sigurmarkið í Íslendingaslag
Jónatan Ingi er að eiga stórkostlegt tímabil í Noregi
Jónatan Ingi er að eiga stórkostlegt tímabil í Noregi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svava Rós lagði upp sigurmark Brann
Svava Rós lagði upp sigurmark Brann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Sogndal, hefur átt magnað tímabil með liðinu síðan hann kom frá FH fyrir tímabilið en hann gerði 11. mark sitt í deildinni í 3-3 jafntefli við Bryne í dag.

Þessi efnilegi leikmaður jafnaði metin á 29. mínútu leiksins áður en Valdimar Þór Ingimundarson lagði upp annað mark liðsins stuttu síðar.

Sogndal komst í 3-1 áður en hálfleikurinn var úti en liðið glutraði niður forystunni í síðari hálfleik og voru lokatölur 3-3. Valdimar fór af velli á 54. mínútu en Jónatan ellefu mínútum síðar. Hörður Ingi Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Sogndal sem er í 9. sæti með 33 stig.

Jónatan Ingi er með ellefu mörk í deildinni og samkvæmt Transfermarkt hefur hann lagt upp tíu mörk. Magnað tímabil sem hann er að eiga.

Bjarni Mark Antonsson spilaði hálftíma er Start lagði Stjordals Blink, 3-1. Start er í 6. sæti með 39 stig.

Birkir Þór Guðmundsson lék allan leikinn er Volda TI gerði 3-3 jafntefli við varalið Kongsvinger í fimmtu efstu deild en Volda er í 9. sæti með 21 stig.

Svava Rós lagði upp sigurmarkið

Svava Rós Guðmundsdóttir og stöllur hennar í Brann unnu Vålerenga, 2-1, í meistarariðlinum. Ingibjörg Sigurðardóttir spilaði allan leikinn í vörn Vålerenga og þá lék Svava Rós allan leikinn fyrir Brann.

Svava lagði upp annað mark Brann í leiknum sem reyndist sigurmarkið. Hún tók hlaupið upp vænginn og kom með frábæra fyrirgjöf á Mariu Brochmann sem skoraði, en Maria hafði komið inná sem varamaður stuttu áður.

Brann er í efsta sæti meistarariðilsins með 9 stig, tveimur meira en Rosenborg sem er í öðru sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner