Fotbolti.net
11.09.26 - 22:16
Magnús Atlason

Anton Ari: Skiptir ekki máli hvort maður vinni bróðir sinn eða gamla félaga

Auglýsing
Anton Ari Einarsson, markmaður Breiðabliks.

Anton Ari Einarsson, markmaður Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Breiðablik eru bikarmeistarar eftir 2-1 háspennusigur á Aftureldingu. Fótbolti.net náði tali af Antoni Ara Einarssyni, markmanni Breiðabliks, eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 2 Breiðablik
"Hún er náttúrulega bara tryllt, það er ekkert eðlilega sætt að sækja bikarinn þótt að gengið undanfarið hefur ekki verið eins og við viljum hafa það, þá er ekkert eðlilega gott að koma á svona leik og vinna bikar."

Anton var að vinna Magnús Má Einarsson þjálfara Aftureldingar en þeir eru bræður.

"Það er alveg smá skrýtið en heilt yfir skiptir það ekki beint máli hvort maður sé að vinna bróðir sinn, gamla félaga eða eitthvað svoleiðis."

Hefði Anton viljað mæta einhverjum öðrum í úrslitum?

"Ef mér hefði verið boðið, áður en bikarinn byrjaði, úrslitaleik á móti Eldingunni, hefði ég 100 prósent kosið það. Svo nei ég hugsa ekki."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.