Höskuldur eftir Mjólkurbikar sigurinn - „Það verður Lebowski mjólk í kvöld"


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Tilfinningin er bara geggjuð, hún er nokkurnvegin svona," sagði Höskuldur og benti upp í stúku á stuðningsmenn Breiðabliks upp í stúku sem voru enn fagnandi.
Bikarsafnið hjá Höskuldi er nokkuð stórt en það eina sem vantaði fyrir leik var Mjólkurbikarinn. Það kom í kvöld og hann er þá búinn að vinna allt.
„Þetta hefur verið lengi á leiðinni, þetta hefur verið erfitt, erfið keppni. Mig er bara búið að langa í þennan úrslitaleik af því þetta er bara geðveikt svið, geðveik upplifun, allur dagurinn og vonandi kvöldið. Það verður pottþétt geðveikt. Þetta var bara mjög dýrmætt augnablik," sagði Höskuldur.
Höskuldur skoraði fyrsta mark Breiðabliks strax á fjórðu mínútu en Blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti.
„Mér fannst við mæta með hárrétt spennustig. Mér fannst við vera á tánnum og hungraðir, aggresívari til að byrja með. Það var eðlilega smá stress í þeim, smá hrollur, mér fannst við mæta og svolítið sjokkera þá. Við vankum þá auðvitað með þessum mörkum, og fylgjum því eftir. Við erum bara klaufar að bæta ekki í, fengum fullt af sénsum. Í enda dagsins var það fyrri hálfleikurinn sem skar úr. Hrollurinn fer úr þeim, og þeir mæta bara geggjaðir í seinni hálfleik, við förum eðlilega að verja fenginn hlut. Þannig fyrri hálfleikurinn bara vann þetta," sagði Höskuldur.
Tímabilið hefur verið vonbrigði í deildinni hjá Breiðablik en þessi titill gerir mikið til að laga stöðuna.
„Þetta breytir öllu bara það er ekkert flóknara en það. Þetta gerir bara vonda stöðu góða. Þetta Evrópusæti gefur líka ákveðna leið, þetta er næst best á eftir meistara liðinu, því við byrjum í Evrópudeildinni. Þannig þetta er fáránlega dýrmætur fyrir klúbbinn í heild sinni og þennan hóp," sagði Höskuldur.
Leikmenn og stuðningsmenn munu eflaust fagna dátt í kvöld, og þar á meðal verður Höskuldur.
„Það verður bara rugl gaman, það verður svona Lebowski mjólk í kvöld," sagði Höskuldur og hló.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
