Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. nóvember 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Pulis líklegastur hjá Sheffield Wednesday
Mynd: Getty Images
Tony Pulis, fyrrum stjóri Stoke, þykir líklegastur til að taka við Sheffield Wednesday.

Garry Monk var rekinn frá Sheffield Wednesday í vikunni en liðið er í næstneðsta sæti í Championship deildinni.

Pulis er búinn að taka fund með forráðamönnum Sheffield Wednesday og stefnt er á frekari viðræður í dag eða á morgu.

Nigel Pearson og Paul Cook koma einnig til greina í starfið samkvæmt nýjustu fréttum.

Áður höfðu Phil Neville og Sol Campbell verið orðaðir við félagið.
Athugasemdir
banner
banner