Fotbolti.net
11.11.22 - 10:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gummi Magg hjá Fram út 2024 (Staðfest)

Gummi Magg hjá Fram út 2024 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðmundur Magnússon hefur framlengt samning sinn við Fram. Hann ákvað að nýta sér uppsagnarákvæði á dögunum en hefur nú skrifað undir nýjan samning sem gildir út þarnæsta tímabil.

Guðmundur, sem er 31 árs framherji, átti frábært tímabil með Fram, skoraði sautján mörk, jafnmikið og Nökkvi Þeyr Þórisson. Með leikjunum sem hann spilaði í sumar er hann kominn í 202 leiki fyrir Fram á ferlinum. Í tilkynningu Fram kemur fram að 26 leikmenn hafa spilað 200 eða fleiri leiki fyrir Fram á sínum ferli
„Það er ánægjulegt að vera búinn að framlengja við félagið mitt. Það kom ekkert annað til greina en að vera áfram og byggja ofan á þá góðu hluti sem eiga sér stað bæði innan félagsins og hjá mér persónulega. Ég er virkilega spenntur fyrir komandi tímum og vona að við náum að gera betur á næsta ári og að við höldum áfram að skemmta okkar fólki sem og áhugamönnum um íslenska boltann," sagði Gummi við undirskrift.

„Það var löngu vitað að Gumma líður vel í bláu og ánægjulegt að hann sé búinn að framlengja við okkur út tímabilið 2024. Gummi hefur verið ákveðinn í því frá fyrsta samtali að hann ætlaði að taka þátt í áframhaldandi uppgöngu félagsins. Gummi er líka vinsæll meðal ungra stuðningsmanna klúbbsins og er frábært að uppalinn leikmaður sé svo góð fyrirmynd,“ sagði Agnar Þór Hilmarsson formaður knd. Fram.

Smelltu hér til að sjá skemmtilegt myndband sem Fram birti í tengslum við tilkynninguna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.