Fotbolti.net
11.12.24 - 21:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Meistaradeildin: Manchester City er í alvöru brasi - Saka sá um Mónakó

Barcelona vann í Dortmund

Juventus vann heimasigur gegn City.

Juventus vann heimasigur gegn City.

Canon

Mynd: Getty Images

Sjö leikjum var rétt í þessu að ljúka í sjöttu umferð Meistaradeildarinnar. Vandræði Manchester CIty halda áfram en liðið hefur nú einungis unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum í öllum keppnum. Liðið heimsótti Juventus í kvöld og tapaði 2-0. Dusan Vlahovic og Weston McKennie skoruðu mörk Juventus.

Arsenal vann þægilegan 3-0 sigur gegn Mónakó þar sem Bukayo Saka sá um að skora tvö fyrstu mörkin og Kai Havertz skoraði þriðja markið eftir undirbúning frá Saka. Havertz hafði lagt upp annað markið fyrir Saka.
Meistaradeildin: Hetjan Hákon með frábært sigurmark nýkominn inná
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Hetjan Hákon með frábært sigurmark nýkominn inná

AC Milan lenti í erfiðleikum gegn Rauðu Stjörnunni á heimavelli en Tammy Abraham bjargaði Milan fyrir horn með marki undir lokin.

Í Dortmund tóku heimamenn á móti Barcelona og eftir markalausan fyrri hálfleik skiptust liðin á að skora í seinni hálfleik. Barcelona skoraði fyrsta og síðasta markið og vann því 2-3 útisigur. Varamaðurinn Ferran Torres skoraði síðustu tvö mörk Börsunga og reyndist hetja liðsins.

Feyenoord vann 4-2 sigur á Spörtu frá Prag, Benfica og Bologna gerðu markalaust jafntefli og Stuttgart vann 5-1 sigur á Young Boys þar sem Fabian Rieder lagði upp þrjú mörk.

Barcelona er eftir kvöldið í 2. sæti deildarinnar með 15 stig, þremur stigum á efftir Liverpool sem er með fullt hús á toppnum. Arsenal er svo í 3. sæti. Manchester City er í 22. sæti og á ekki raunhæfan séns á því að enda í einu af topp átta sætunum.

Sjöunda og áttunda umferðin fara fram í janúar.

Benfica 0 - 0 Bologna

Borussia Dortmund 2 - 3 Barcelona
0-1 Raphinha ('53 )
1-1 Serhou Guirassy ('60 , víti)
1-2 Ferran Torres ('75 )
2-2 Serhou Guirassy ('78 )
2-3 Ferran Torres ('85 )

Feyenoord 4 - 2 Sparta Prag
1-0 Gernot Trauner ('8 )
2-0 Igor Paixao ('10 )
3-0 Anis Hadj Moussa ('30 )
3-1 Albion Rrahmani ('43 )
4-1 Santiago Gimenez ('63 )
4-2 Thomas Beelen ('79 , sjálfsmark)

Juventus 2 - 0 Manchester City
1-0 Dusan Vlahovic ('53 )
2-0 Weston McKennie ('75 )

Milan 2 - 1 Crvena Zvezda
1-0 Rafael Leao ('42 )
1-1 Nemanja Radonjic ('67 )
2-1 Tammy Abraham ('87 )

Stuttgart 5 - 1 Young Boys
0-1 Lukasz Lakomy ('6 )
1-1 Angelo Stiller ('25 )
2-1 Enzo Millot ('53 )
3-1 Chris Fuhrich ('61 )
4-1 Josha Vagnoman ('66 )
5-1 Yannik Keitel ('75 )

Arsenal 3 - 0 Mónakó
1-0 Bukayo Saka ('34 )
2-0 Bukayo Saka ('78 )
3-0 Kai Havertz ('88 )
Ferran Torres og Lamine Yamal voru öflugir í Dortmund.

Ferran Torres og Lamine Yamal voru öflugir í Dortmund.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal8+1924
2Bayern8+1421
3Liverpool8+1218
4Tottenham8+1017
5Barcelona8+816
6Chelsea8+716
7Sporting8+616
8Manchester City8+616
9Real Madrid8+915
10Inter8+815
11Paris Saint Germain8+1014
12Newcastle8+1014
13Juventus8+413
14Atletico Madrid8+213
15Atalanta8013
16Bayer8-112
17Borussia D.8+211
18Olympiakos8-411
19Club Brugge8-210
20Galatasaray8-210
21Monaco8-610
22Qarabag8-810
23Bodo-Glimt8-19
24Benfica8-29
25Marseille8-39
26Pafos FC8-39
27St. Gilloise8-99
28PSV808
29Athletic8-58
30Napoli8-68
31FC Kobenhavn8-98
32Ajax8-136
33Eintracht Frankfurt8-114
34Slavia Praha8-143
35Villarreal8-131
36Kairat8-151
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.