Fotbolti.net
18.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Lærisveinn Heimis færist nær La Liga

Lærisveinn Heimis færist nær La Liga
Canon

Mynd: EPA

Írski framherjinn Troy Parrott færist nær því að ganga í raðir Real Betis frá AZ Alkmaar og stefnir allt í að hann leiki í La Liga og Meistaradeildinni á komandi leiktíð.
Sky segir félögin vera að ganga frá samkomulagi um Parrott, sem átti lengi í viðræðum við West Ham.

West Ham bauð sautján milljónir punda í framherjann í síðustu viku en AZ hafnaði tilboðinu. Enska félagið hefur ekki komið aftur með annað tilboð.

Parrott er 24 ára gamall og átti stórkostlegt tímabil með AZ á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 31 mark í öllum keppnum.

Hann fylgdi því eftir með írska landsliðinu og hjálpaði því að komast í umspil um sæti á HM. Parrott skoraði tvennu gegn Portúgal og síðan ótrúlega þrennu gegn Ungverjalandi í nóvember. Þar með varð hann fyrsti írski landsliðsmaðurinn til að skora þrennu í keppnisleik síðan Robbie Keane gerði það árið 2014.

Real Betis yrði spennandi næsta skref fyrir Parrott en liðið verður í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á komandi leiktíð.

Írinn var áður á mála hjá Tottenham en lék aðeins fjóra leiki fyrir félagið.
Lærisveinn Heimis færist nær La Liga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.