Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. janúar 2020 19:16
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man City gegn Aston Villa: Aguero bestur
Leikmenn City fagna Sergio Aguero innilega
Leikmenn City fagna Sergio Aguero innilega
Mynd: Getty Images
Það var Englandsmeistarabragur á Manchester City er liðið vann Aston Villa 6-1 á Villa Park í kvöld en Sergio Aguero var besti maður vallarins að mati Sky Sports.

Aguero skoraði þrennu í leiknum og bætti markamet Thierry Henry en Aguero er nú markahæsti útlendingurinn í úrvalsdeildinni frá upphafi.

City-liðið spilaði vel gegn Villa en Riyad Mahrez var næst bestur á eftir Aguero og þá voru þeir Kevin De Bruyne, David Silva og Joao Cancelo einnig öflugir.

Einkunnir úr leiknum:

Aston Villa: Nyland (4), Konsa (4), Mings (5), Hause (4), Elmohamady (5), Douglas Luiz (3), Drinkwater (3), Hourihane (4), Taylor (4), Grealish (5), El Ghazi (5)
Varamenn: Trezeguet (6), Nakamba (5).

Man City: Ederson (7), Stones (7), Cancelo (8), Rodrigo (7), Fernandinho (7), Mendy (7), De Bruyne (8), David Silva (8), Mahrez (9), Jesus (7), Aguero (10)
Varamenn: Otamendi (6), Foden (6), Gundogan (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner