Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. janúar 2021 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Reading að semja við Bayern München
Omar Richards.
Omar Richards.
Mynd: Getty Images
Búist er við því að Omar Richards, varnarmaður Reading á Englandi, skrifi undir samning við Evrópumeistara Bayern München.

Það er Guardian sem segir frá þessu en samningur Richards við Reading rennur út eftir tímabilið.

Richards hefur verið að spila vel með Reading í næst efstu deild Englands en hann er 22 ára gamall og spilar sem vinstri bakvörður. Hann er að gera mikið rétt fyrst hann er að heilla þýska stórveldið.

Hann er að fara að skrifa undir þriggja ára samning við Bayern að sögn Guardian. Hann hefur líka vakið áhuga Everton og West Ham sem eru í ensku úrvalsdeildinni.

David Alaba er líklega á förum frá Bayern í sumar og hefur hann mest verið orðaður við Real Madrid. Þar sem Alaba er á förum þá vill Bayern fá inn leikmann sem getur leikið í stöðu vinstri bakvarðar til að veita Alphonso Davies samkeppni.

Það er nú þegar einn Englendingur hjá Bayern, hinn 17 ára gamli Jamal Musiala. Sá er mjög efnilegur og hefur spilað í 16 keppnisleikjum með aðalliðinu á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner