Leikið var um 3. sætið og 5. sæti í C-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld.
Í leiknum um 5. sætið tók Kári á móti Augnabliki í Akraneshöllinni. Liðin höfðu endað í 3. sæti í sínum riðlum. Garðar Gunnlaugsson skoraði eina mark leiksins fyrir Kára og var það af dýrari gerðinni, því miður fyrir Garðar og alla áhugasama var ekki verið að taka upp leikinn.

Á KR-vellinum vann KV 4-2 sigur á Reyni Sandgerði í leiknum um 3. sætið. KV leiddi með þremur mörkum í hálfleik og þrjú mörk voru skoruð í seinni hálfleik.
KV hafði því betur í kvöld líkt og síðasta sumar þegar KV endaði í efsta sæti 3. deildar og Reynir í 2. sætinu.
KV 4 - 2 Reynir S.
Mörk KV: Askur Jóhannsson, Valdimar Daði Sævarsson, Magnús Snær Dagbjartsson og Sebastian Miastkowski (á reynslu)
Markaskorarar Reynis: Magnús Þórir Matthíasson og Elfar Máni Bragason
Kári 1 - 0 Augnablik
1-0 Garðar Gunnlaugsson
Hvar er kameran þegar maður þarf hana @ia_sjonvarp https://t.co/QNPsCekZlD
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) February 12, 2021
Athugasemdir