Fotbolti.net
12.02.21 - 21:54
Aksentije Milisic

Spánn: Mina með tvennu í sigri Celta

Spánn: Mina með tvennu í sigri Celta
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Celta 3 - 1 Elche</b>
1-0 Santi Mina ('45 )
2-0 Brais Mendez ('45 )
2-1 Emiliano Rigoni ('51 )
3-1 Santi Mina ('68)
Celta de Vigo fékk Elche í heimsókn í spænsku deildinni í kvöld. Celta, sem byrjaðir tímabilið illa, er nú á góðum stað um miðja deild. Elche er hins vegar í næst neðsta sæti.

Undir lok fyrri hálfleiks gerðu heimamenn í Celta tvö mörk. Santi Mina og Brais Mendez sáu um þau og staðan því 2-0 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.

Emiliano Rigoni gaf gestunum von á 51. mínútu þegar hann minnkaði muninn. Santi Mina var hins vegar aftur á ferðinni þegar um 20 mínútu voru til leiksloka og gulltryggði sigur þeirra ljósbláu.

Celta er nú í níunda sæti deildarinnar á meðan Elche er í bullandi fallbaráttu.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Villarreal11012
9Celta11012
10Alaves11-212
11Vallecano10-512
12Getafe11-812
13Deportivo10011
14Espanyol11-111
15Osasuna10-1011
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.