Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 19:15
Snæbjört Pálsdóttir
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Eimskip
Diljá Ýr Zomers segir mörkin vera á leiðinni hjá íslenska liðinu.
Diljá Ýr Zomers segir mörkin vera á leiðinni hjá íslenska liðinu.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Diljá Ýr segir liðið þurfa að vera hugrakkara með boltann.
Diljá Ýr segir liðið þurfa að vera hugrakkara með boltann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers segir íslenska landsliðið hafa fulla trú á því að mörkin fari að detta inn þegar liðið mætir Úkraínu í komandi heimaleik.

„Bara mjög vel. Gaman að fá að spila heima, báða leikina og fá loksins að spila á Laugardalsvelli. Fyrst og fremst að bara að fókusa á Úkraínu núna og vinna þann leik.“


Hún segir liðið hafa tekið jákvæða hluti með sér úr síðasta verkefni.

„Við höfum talað um það að vera kannski aðeins hugrakkari, við höfum sýnt það sérstaklega gegn Englandi, við áttum þarna kafla þar sem við náum að spila þær út. Við þurfum að halda áfram að gera það og gera meira af því, frá fyrstu mínútu en ekki bara þegar við komum seinna inn í leikina.“

Diljá segir leikinn gegn Úkraínu krefjast annars konar nálgunar.

„Þessi leikur verður allt öðruvísi en hinir leikirnir og við viljum stjórna leiknum meira. Þær eru mjög beinskeyttar, pressa hátt og vilja fara svolítið í löngu boltana. Þetta verður allt öðruvísi leikur og við þurfum bara að díla við það.“

Hún segir lykilatriði að leysa pressuna og nýta plássin sem skapast.

„Bara spila okkar bolta, fókusinn verður svolítið á að reyna að leysa þessa beinskeyttu pressu með einni sendingu fram á við. Fara í gegnum það og fá stór pláss og keyra á það.“

Diljá er bjartsýn á sóknarleikinn.

„Já við höfum verið að vinna í leiðunum sem við viljum fara á móti Úkraínu og vonandi tekst okkur bara að koma inn marki. Við þurfum að halda áfram að sækja og við sýndum alveg, við áttum skot í slá á móti Englandi, þannig mörkin liggja alveg í loftinu.“

Hún segir liðið einnig þurfa að nýta föstu leikatriðin betur.

„Að sama skapi þurfum við að nýta föstu leikatriðin okkar. Ég hef fulla trú á því að mörkin koma á þriðjudaginn!“

Að lokum leggur hún áherslu á mikilvægi þess að fá stuðning úr stúkunni.

„Mjög mikilvægt, það er einmitt það á Laugardalsvelli að maður finnur fyrir þessum aukakrafti í stúkunni og sérstaklega ef það eru fleiri heldur en færri, Vonandi sjáum við bara sem flesta.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner