Baldur Ingimar Aðalsteinsson hefur fengið félagaskipti yfir í KFG, sem er í 3. deild.
Baldur Ingimar er 41 árs og það er spurning hversu mikið hann mun spila í sumar en hann er alla vega með þann möguleika til staðar að spila fyrir KFG.
Baldur á yfir 200 leiki í efstu tveimur deildum á Íslandi sem og í bikarkeppnum með ÍA, Víkingi og Val. Hann á þá átta A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Hann spilaði síðast fótbolta í Íslandsmóti 2018 og var þá á mála hjá uppeldisfélagi sínu, Völsungi, í 2. deild. Hann var þá einu sinni leikmaður umferðarinnar.
Baldur hefur áður spilað með KFG, hann var á mála hjá félaginu frá 2014 til 2016.
KFG átti að spila við Tindastól í fyrstu umferð 3. deildar en þeim leik var frestað. KFG hefur leik í deildinni um helgina gegn Einherja á útivelli.
Athugasemdir