Fotbolti.net
12.06.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Matej Sulejmani til Benfica (Staðfest)

Miralem Sulejmani

Miralem Sulejmani

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska stórliðið Benfica hefur fest kaup á Miralem Sulejmani frá Ajax, en félagið staðfesti þetta í gær.
Sulejmani, sem er 24 ára gamall framherji, kemur til Benfica á frjálsri sölu, en samningur hans rennur út í sumar.

Hann skrifaði undir fimm ára samning við Benfica, en hann var orðaður við mörg lið þar á meðal Everton, Besiktast og Wolfsburg.

Sulejmani kom til Ajax frá Heerenveen árið 2008 fyrir 16,2 milljónir evra, en fékk lítið að spila eftir að Frank de Boer tók við félaginu.

Þetta er þriðji leikmaðurinn sem Benfica fær, en liðið hefur þegar fengið Lazar Markovic og Filip Djuricic í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.