Brentford greiðir metupphæð fyrir Schade (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brentford staðfesti í dag að Kevin Schade er alfarið genginn í raðir félagsins. Schade kom á láni frá Freiburg í janúar og var ákvæði í samningnum sem Brentford nýtti sér.
Ákvæðið hljóðaði upp á 20 milljónir punda sem gerir Schade að dýrasta leikmanni í sögu Brentford.

Schade er 21 árs sóknarmaður sem kom nítján sinnum við sögu eftir komuna frá Freiburg og lagði upp eitt mark. Hann var í fyrsta sinn í þýska landsliðinu í mars.
Nokkur atriði þurftu að raungerast svo Brentford myndi virkja ákvæðið. Eitt af þeim var að Brentford myndi halda sæti sínu í deildinni.
Schade skrifar undir samning fram á sumarið 2028. Hann fær væntanlega talsverða ábyrgð á næsta tímabili þar sem Ivan Toney verður í banni fram í janúar.