Moyes verður áfram (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, verður áfram stjóri félagsins en frá þessu var greint fyrir skemmstu í breskum miðlum.. Það var svo sem búist við því að Moyes yrði áfram en það var undir honum komið og hefur hann ákveðið að taka slaginn áfram.
West Ham varð Sambandsdeildar meistari í síðustu viku og var það fyrsti titill félagsins í 43 ár. West Ham verður því í Evrópu þriðja tímabilið í röð.
West Ham varð Sambandsdeildar meistari í síðustu viku og var það fyrsti titill félagsins í 43 ár. West Ham verður því í Evrópu þriðja tímabilið í röð.
Allt bendir til þess að West Ham verði þó án fyrirliðans Declan Rice á næsta tímabili en hann hefur mest verið orðaður við Arsenal og Bayern Munchen.
Moyes er sextugur Skoti sem stýrði West Ham 2017-18 og tók svo aftur við stjórnartaumunum árið 2019.
Declan Rice sagði í viðtali eftir Sambandsdeildarsigurinn að Moyes væri besti stjóri í sögu félagsins.