Fotbolti.net
12.06.23 - 18:00
Brynjar Ingi Erluson

Newcastle kaupir Minteh og lánar til Feyenoord (Staðfest)

Newcastle kaupir Minteh og lánar til Feyenoord (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle United

Enska félagið Newcastle United hefur fest kaup á Yankuba Minteh en hann kemur til félagsins frá OB í Danmörku.
Minteh er 18 ára gamall og kemur frá Gambíu en hann kom að tíu mörkum í sautján leikjum með OB á þessari leiktíð.

Þessi efnilegi leikmaður gengur formlega í raðir Newcastle þann 1. júlí en hann verður lánaður um leið til hollenska meistaraliðsins Feyenoord.

Minteh getur spilað á báðum köntum og einnig sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Elís Þrándarson var liðsfélagi Minteh hjá OB en Aron hefur einnig yfirgefið félagið eftir að samningur hans rann út.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.