Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Hættir City við Anderson?
Elliot Anderson er enskur landsliðsmaður.
Elliot Anderson er enskur landsliðsmaður.
Mynd: EPA
Mirror segir að forráðamenn Manchester City séu pirraðir út í Nottingham Forest eftir að risatilboði í hinn 23 ára gamla Elliot Anderson var hafnað.

Talið er að um 100 milljóna punda tilboð hafi verið að ræða með árangurstengdum ákvæðum sem hækki það upp í 120 milljónir.

Evangelos Marinakis eigandi Forest vill hinsvegar fá upphæðina greidda alla í einu.

Khaldoon Al-Mubarak stjórnarformaður City telur tilboðið hinsvegar meira en sanngjarnt fyrir miðjumann sem hefur enn mikið að sanna og hefur ekki spilað í Meistaradeildinni.

Mirror segir mögulegt að City hætti við tilraunir til að fá Anderson ef Forest stendur við kröfur sínar.

Anderson byrjaði í 3-0 sigri Englands gegn Kosta Ríka á miðvikudag en hann er ein skærasta stjarna Forest.
Slapp
banner
banner