Said Benrahma, leikmaður Brentford í ensku B-deildinni, skoraði frábært mark í 3-1 sigrinum á Derby County í gær en hann er eftirsóttur af stórliðum í Evrópu.
Brentford fékk Benrahma á gjafaverði frá Nice fyrir tveimur árum en félagið fékk hann á 2,7 milljónir punda.
Enska félagið hefur gert góða hluti á markaðnum síðustu ár en það er ljóst að Brentford getur komið út í góðum plús í sumar ef það ákveður að selja Benrahma.
Hann hefur gert 16 mörk og lagt upp 9 í ensku B-deildinni og eru lið á borð við Chelsea og Arsenal á eftir honum.
Hægt er að sjá eitt af tveimur mörkum hans gegn Derby hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Benrahma
Athugasemdir