Fotbolti.net
12.07.22 - 17:42
Ívan Guðjón Baldursson

Brentford borgar 20 milljónir fyrir Lewis-Potter (Staðfest)

Brentford borgar 20 milljónir fyrir Lewis-Potter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brentford er búið að staðfesta kaup á framherjanum efnilega Keane Lewis-Potter frá Hull City.

Brentford borgar 20 milljónir punda í heildina og skrifar Lewis-Potter undir sex ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Lewis-Potter er 21 árs gamall og á fjóra leiki og eitt mark fyrir U21 landslið Englands. Hann hefur skorað 28 mörk og gefið 9 stoðsendingar í 99 leikjum á síðustu tveimur tímabilum hjá Hull.

Brentford hefur fylgst náið með þessum flotta framherja undanfarin misseri og gerði hann að sínu aðalskotmarki í janúar.

Lewis-Potter er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Brentford í sumar eftir að félagið festi kaup á skoska bakverðinum Aaron Hickey fyrir um það bil 18 milljónir punda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.