12.07.22 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson
Nathan Collins fyrstu kaup Wolves í sumar (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Wolves er búið að tilkynna fyrstu kaup félagsins undir stjórn Bruno Lage í sumar. Það er varnarmaðurinn ungi Nathan Collins sem féll úr úrvalsdeildinni með Burnley á síðustu leiktíð.
Collins er 21 árs landsliðsmaður Írlands og lék 22 leiki með Burnley á síðustu leiktíð.
Úlfarnir hafa miklar mætur á Collins og borga rúmlega 20 milljónir punda fyrir hann samkvæmt fjölmiðlum á Englandi.
Collins skrifar undir fimm ára samning við Wolves og verður líklega notaður ásamt Conor Coady og Willy Boly í þriggja manna varnarlínu þó hann geti einnig spilað í hægri bakverði.
Checking in at the last minute.
— Wolves (@Wolves) July 12, 2022
🇮🇪✍️ pic.twitter.com/XqNslb0XgA
