Fotbolti.net
12.07.22 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Watford kaupir Rey Manaj frá Barcelona (Staðfest)

Manaj hefur skorað 7 mörk í 31 landsleik með Albaníu. Hann gerði 13 mörk í 9 landsleikjum með U21 liðinu.

Manaj hefur skorað 7 mörk í 31 landsleik með Albaníu. Hann gerði 13 mörk í 9 landsleikjum með U21 liðinu.

Canon

Mynd: EPA

Watford er búið að festa kaup á albanska sóknarmanninum Rey Manaj sem kemur úr herbúðum Barcelona.

Manaj er 25 ára gamall og þótti gríðarlega mikið efni á sínum tíma. Inter keypti hann á táningsárunum og svo hélt hann til Barcelona þar sem hann spilaði einungis fyrir B-liðið.

Hann skoraði 14 mörk í 22 leikjum á sínu síðasta tímabili með varaliði Barca áður en félagið lánaði hann út til Spezia á Ítalíu. Hann skoraði nokkur mikilvæg mörk fyrir Spezia sem bjargaði sér frá falli á síðustu leiktíð og hefur Watford ákveðið að kaupa hann.

Kaupverðið er óuppgefið en hann skrifar undir þriggja ára samning við Watford, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Manaj mun taka sæti Joshua King í leikmannahópi Watford eftir að norski landsliðsmaðurinn yfirgaf félagið til að ganga í raðir Fenerbahce.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.