Wayne Rooney tekinn við DC United (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hinn 36 ára gamli Rooney var leikmaður DC United árin 2018 og 2019 þar sem hann raðaði inn mörkunum en hélt svo til Englands til að taka við sem spilandi þjálfari hjá Derby County.
Dvöl hans hjá Derby einkenndist af fjárhagsvandræðum félagsins, sem féll niður um deild vegna þeirra vandræða. Rooney sagði upp störfum eftir að Derby féll og hefur verið í viðræðum við DC United undanfarnar vikur.
Rooney mun taka við félaginu þegar hann fær atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. DC hefur ekki átt góðu gengi að fagna í MLS deildinni og er í næstneðsta sæti austurhluta deildarinnar með 17 stig úr 17 leikjum. Síðasti leikur liðsins var 7-0 tap gegn Philadelphia Union.
Það verður áhugavert að sjá hvort Rooney takist að snúa slöku gengi DC við eftir að hafa öðlast reynslu í Championship deildinni.
Ruthless competitor. Fearless leader.
— D.C. United (@dcunited) July 12, 2022
Wayne is ready to take the helm in D.C. 👊#DCU || @WayneRooney pic.twitter.com/6rMbLVgWQd
