12.08.13 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Kolbeinn Kára til Flekkeroy (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norska félagið Flekkerøy hefur fengið Kolbein Kárason framherja Vals á láni út tímabilið.
Jóhannes Harðarson þjálfar lið Flekkerøy og hann hefur fengið Kolbein í sínar raðir.
Flekkerøy leikur í norsku C-deildinni en liðið er í næstneðsta sæti sínum riðli, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar mótið er rúmlega hálfnað.

Kolbeinn hefur skorað þrjú mörk í ellefu leikjum með Val í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kom síðast við sögu gegn Fylki þann 21. júlí en hann var ekki í leikmannahópnum gegn Stjörnunni í gærkvöldi.

Heimild: Heimasíða Flekkeroy